Þessi bolli er með litlu opi sem nýtist bæði fyrir þá sem hafa yfirvaraskegg og vilja ekki fá mjólkina í skeggið eða fyrir þá sem drekka te með lausu telaufi. Stundum kallaður “sip mug” á ensku, sem þýða mætti sem söturbolli.
Almennt um leirmunina mína:
Allir mínir leirmunir eru handgerðir af mér og tvíbrenndir. Munirnir eru handmótaðir, ekki renndir. Í matarílát nota ég eingöngu til þess gerða glerunga, þ.e. þeir eru “food safe”.
Leirmunir mínir þola að fara í uppþvottavél, en ég mæli samt með handþvotti.
Ókeypis heimsending á höfuðborgarsvæðinu sé þess óskað.
Umsagnir
Ekki komnar neinar umsagnir.