2 stk. í pakka.
Þvermál: sirka 13 sm.
Hlýjurnar eru prjónaðar úr 100% íslenskri ull.
Ullin er lítið unnin sem þýðir að náttúrulega ullarfitan er ennþá í garninu.
Garnið er handlitað á Íslandi.
Fyrir þær sem ekki þola að hafa ullina upp við húð er sniðugt að vera með silkihlýjur upp við húðina eða annarskonar innlegg.
Þvottaleiðbeiningar: þvoist í höndunum með volgu vatni. Best er að nota lyktarlausa sápu sem er ætluð fyrir ullarþvott. Þær sápur viðhalda eiginleikum efnisins. Ég nota alltaf ,Olive laundry liquid for wool and silk’ sápuna frá Sonett þegar ég þvæ ull og silki.
Gangi þér sem allra best í brjóstagjöfinni.
Umsagnir
Ekki komnar neinar umsagnir.