Skemmtileg persónuleg kort með Spotify kóða. Þú velur lagið. Það getur t.d. verið uppáhalds lag eða eitthvað sem minnir þig á viðtakanda, lag með skemmtilegum texta eða hverju sem þér dettur í hug.Kóðinn er svo skannaður í Spotify og lagið byrjar að spila í símanum.Gefur persónulegan og skemmtilegan blæ á gjöfina.Sendu okkur nafnið á laginu og flytjanda, þá mynd sem þú vilt hafa og ef þú vilt hafa texta á kortinu (t.d. nafn viðtakanda eða dagsetningu) og ef þú hefur aðrar óskir á [email protected]
Brjóstin "Krækiber" eru falleg og skemmtileg brjóst, enda eru öll brjóst falleg og skemmtileg!
Það er hægt að kaupa veggspjöldin í 3 mismunandi tegundum, minimalísk, litrík og með textanum „Það er ekkert skemmtilegra en brjóst"
Uppskriftin er seld sem pdf skjal. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
Laufey er handunnin taska úr sterku, grænu reipi sem fangar fegurð náttúrunnar. Með fallegu fléttuðu mynstri og mjúkri áferð er hún bæði stílhrein og praktísk. Löng handföng gera hana þægilega í notkun, hvort sem hún er borin í hendi eða yfir öxl. Létt, en sterk og fullkomin fyrir hversdagsnotkun eða sem áberandi fylgihlutur við sérstök tilefni.Stærð: 30 x 22 cm
Brjóstin "Límónur" eru falleg og skemmtileg brjóst, enda eru öll brjóst falleg og skemmtileg!
Það er hægt að kaupa veggspjöldin í 3 mismunandi tegundum, minimalísk, litrík og með textanum „Það er ekkert skemmtilegra en brjóst"
Handunnin kremhvít macrame-taska úr hágæða bómullarsnúru. Einstakt og vandað handverk með fallegu prjónuðu mynstri sem gefur henni bæði boho og klassískt yfirbragð. Taskan er með langri ól sem tengist gylltum hringjum. Hún er rýmileg og hentug fyrir daglega notkun, en einnig fullkomin sem stílhreinn fylgihlutur fyrir sérstök tilefni.Stærð: 21 x 16 cm